BORGARBÓKASAFNIÐ

Kortin eru lestrarhvetjandi samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og bókaklúbbs Laufeyjar, The Laufey Book Club, sem Laufey heldur úti á Instagram við miklar vinsældir.
Í bókaklúbbnum deilir Laufey sínum uppáhaldsbókum og verður úrvali þeirra stillt út á eftirfarandi söfnum í tilefni dagsins:

Hvernig virka Laufeyjar-bókasafnskortin?
Laufeyjar-bókasafnskortið virkar alveg eins og hefðbundið bókasafnskort.
Árgjald fyrir bókasafnskort hjá Borgarbókasafninu er 3.300 kr. Það sama gildir um Laufeyjar-kortið.
Kíktu við á Borgarbókasafninu Grófinni 23. ágúst ef þig langar að eignast Laufeyjar-kort eða ef þig vantar tillögur að áhugaverðu lesefni. Kortin verða einnig áfram í boði á hinum söfnunum meðan birgðir endast.
Nánari upplýsingar um bókasafnskort hjá Borgarbókasafninu má nálgast hér.