BORGARBÓKASAFNIÐ

Minningar af bakkanum

Veiðislóð - sýning Tómasar Helga Kristjánssonar

Tómas Helgi Kristjánsson sýnir verk sín
Borgarbókasafnið Spönginni
5. júní - 30. júlí 2026

Verið velkomin á opnun sýningarinnar föstudaginn 5. júní kl. 16:30.

Verkin eru byggð á raunverulegum útlínum íslenskra veiðiáa og vatnasvæða. Með einföldum línum og stílhreinni framsetningu eru form staðanna dregin fram á nýjan hátt, þar sem áherslan færist frá smáatriðum yfir í heild og tilfinningu. Hvert verk er þannig bæði staður og minning - tilraun til að fanga það sem margir tengja við en sjá sjaldan á þennan hátt.

Verkin á sýningunni vísa í árnar sem við þekkjum, minningarnar sem verða til á bökkum þeirra og tilfinningarnar sem við berum gagnvart þeim. Þau minna á ósnortna náttúru og ábyrgð okkar gagnvart henni.

Sýningin er fyrsta einkasýning Tómasar og markar upphaf á frekari þróun verkefnisins Veiðislóðar.

Hluti af sölu verka á sýningunni rennur til Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF).
 

Nánari upplýsingar veita:

Tómas Helgi Kristjánsson, myndlistarmaður
veidislod@veidislod.is

Halldór Óli Gunnarsson, sérfræðingur
halldor.oli.gunnarsson@reykjavik.is