BORGARBÓKASAFNIÐ

Reykjavíkurborg, Velferðarsjóður barna og Heimili og skóli hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um heimanámsaðstoð fyrir grunnskólabörn í Reykjavík. Með undirrituninni er staðfestur sameiginlegur vilji til að efla og styrkja heimanámsaðstoð fyrir börn í borginni, með það að markmiði að stuðla að jöfnum tækifærum og auknum námsárangri.
Borgarbókasafnið kemur til með að hýsa heimanámsaðstoðina í útibúum safnsins í Kringlunni og í Gerðubergi en félagasamtökin Heimili og skóli munu sjá um utanumhald og skipulagningu með styrk frá Velferðarsjóði barna.
Það voru þau Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, Sigvaldi Egill Lárusson, formaður Heimilis og skóla, og Kári Stefánsson, stjórnarformaður Velferðarsjóðs barna, sem ávörpuðu gesti eftir undirritun samstarfsyfirlýsingar, á Borgarbókasafninu Kringlunni í dag, miðvikudaginn 19. ágúst, kl. 11:00.
Hildur sagði mikilvægum áfanga náð. „Markmiðið er fyrst og fremst að stuðla að jöfnum tækifærum barna til náms í Reykjavík og veita þeim aðstoð við heimanám sem á þurfa að halda. Við byrjum á tveimur útibúum Borgarbókasafns í borginni sem eru með góðar strætósamgöngur. Þjónustan stendur öllum grunnskólabörnum í Reykjavík til boða.“
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs hjá Borgarbókasafninu, ávarpaði einnig gesti og sagði að með undirritun samstarfsyfirlýsingar um heimanámsaðstoð fyrir grunnskólabörn í Reykjavík væri tekið „mikilvægt skref í þágu barna og fjölskyldna“ í borginni.
Að undirritun lokinni var opnað fyrir umræður og boðið upp á kaffi á safninu.
Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í sjálfboðastarfi við heimanámsaðstoðina geta sett sig í samband við Heimili og skóla: heimiliogskoli@heimiliogskoli.is
Myndir / Katla Ársælsdóttir
