BORGARBÓKASAFNIÐ

Rafbókasafnið er afar vinsælt á meðal þeirra sem njóta þess að hlusta á bækur (hljóðbækur) eða vilja lesa þær beint af skjá (rafbækur). En nú býður Rafbókasafnið ekki "bara" upp á skáldsögur, fræðibækur, ævisögur, sjálfshjálparbækur, barna- og unglingabækur, matreiðslubækur o.s.fr.v. - heldur líka upp á tímarit!
National Geographic, Hello Magazine og allt þar á milli! Þetta finnst okkur frábær viðbót og ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi.
Smelltu hér til að skoða alla titlana
Rafbókasafnið er alveg ókeypis, svo lengi sem þú átt bókasafnskort á einu af aðildarsöfnum Rafbókasafnsins. Sjá lista yfir aðildarsöfnin hér.
Fyrir ykkur sem eruð ekki enn byrjuð að nota Rafbókasafnið mælum við með því að sækja Libby appið í símann og láta appið leiða ykkur í gegnum skráninguna, en einnig er hægt að hlusta og lesa beint úr tölvunni á www.rafbokasafn.is
Hikið ekki við að biðja um aðstoð á söfnunum!