BORGARBÓKASAFNIÐ

Miðlalæsi í nútímasamfélagi

Unnar Geir, Ingibjörg Ösp, Martyna og Guðrún Elísa

Borgarbókasafnið tók nýverið á móti styrk frá Bókasafnasjóði fyrir verkefnið Mjúkt net – samfélagslegt miðlalæsi.

Verkefnið er framlag Borgarbókasafnsins til Miðlalæsisviku 2026 og verður jafnframt heildstæð viðburðaröð haustið 2026 og fram á vor 2027. Þar ætlum við að kafa ofan í samband okkar við tækni, miðla og stafrænt líf, með gagnrýnni hugsun, sköpun og lýðræðislegri þátttöku að leiðarljósi.

Á dagskránni verða meðal annars:

  • Skapandi fjölskylduviðburðir í öllum starfsstöðvum Borgarbókasafnsins.
  • Vikulegar samverustundir þar sem fjallað verður um persónuverndarstillingar, aðgangsheimildir smáforrita og það sem liggur að baki stafrænni sjálfsmynd okkar; meðal annars hvernig kerfin flokka okkur út frá áhugamálum og hegðun.
  • Vinnustofur þar sem saumaðir verða síma-svefnpokar úr Faraday-efni.
  • Miðlasúpa, afslappaðar umræðustofur með súpu, brauði og umræðum um stafrænt samfélag framtíðarinnar.

Við hlökkum til að skapa hægara, mannlegra og meðvitaðra stafrænt rými með ykkur öllum.

Á efstu myndinni er starfsfólk Borgarbókasafnins sem kemur að verkefninu. Frá vinstri: Unnar Geir Unnarsson, Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, Martyna Karolina Daniel og Guðrún Elísa Ragnarsdóttir. Unnar Geir Unnarsson, Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, Martyna Karolina Daniel og Guðrún Elísa Ragnarsdóttir.