BORGARBÓKASAFNIÐ

Borgarbúar létu ekki smá vætu slá sig út af laginu á Menningarnótt og fjölmenntu á fjölmarga skemmtilega viðburði langt fram eftir kvöldi.
Yfirskrift dagskrárinnar á Borgarbókasafninu var Dýrin í Grófarskógi og ríkti heldur betur stemning í skóginum þar sem boðið var upp á fjör fyrir alla fjölskylduna, dýraratleik, krakkakviss, eyðieyjuhopp, jasstónleika, krakkalakkajóga, salsa, samsöng, uppstand og margt fleira. Lögðu vel á þriðja þúsund manns leið sína í „skóginn“ til að taka þátt í gleðinni og er það metþátttaka.
Starfsfólk Borgarbókasafnsins þakkar öllum ævintýraförum fyrir komuna og frábærar móttökur. Það var gaman njóta dagsins með ykkur!
Ljósmyndir / Karítas Guðjónsdóttir



