BORGARBÓKASAFNIÐ

Á DAGSKRÁ ALLAN DAGINN FRÁ KL. 13:00 – 18:00
Frumskógarlego | 1. hæð:
Fjall af Legókubbum fyrir fólk á öllum aldri sem langar að setja saman sitt eigið furðudýr. Gættu þess vel að hafa dýrið vingjarnlegt, öll dýrin á Grófareyju eru vinir og ekkert dýr má borða annað dýr.
Ævintýrasjálfa | 1. hæð:
Það er gaman að eiga myndir til að rifja upp spennandi ævintýraferðir þegar frá líður. Taktu sjálfu af þér með nýju vinunum þínum, Ara apa og Sæunni slöngu. Engar áhyggjur, Sæunn bítur ekki, að minnsta kosti ekki mjög fast.
#dyrinigrofinni
Ratleikur | 2. hæð:
Þekkir þú öll dýrin í frumskóginum?
Læðstu um bókaskóginn og sjáðu hvort þú finnir öll dýrin sem eru búin að fela sig. Farðu gætilega svo þú styggir þau ekki og passaðu að rugla ekki saman dýrum því þá verða þau ægilega svekkt. Flóðhesturinn verður til dæmis voða leiður ef fólk heldur að hann sé blettatígur.
DAGSKRÁ FRÁ KL. 13:00 - 21:00
Krakkalakkajóga
Kl. 13:30 - 14:00 | 2. hæð
Réttu úr þér eins vel og þú getur, líkt og þú værir gíraffi. Farðu síðan niður á fjórar fætur eins og ljón, konungur frumskógarins. Stattu því næst upp, breiddu út risastóran górillufaðminn og ímyndaðu þér að þú sért að faðma stærsta tréð í skóginum.
Kennari: María Shanko, slöngutemjari
Krakkakviss
Kl. 14:00 - 15:00 | Torgið 1. hæð
Ertu mögulega ekki aðeins ævintýrafrömuður heldur einnig sannkallaður bókasnillingur? Hvað heitir apinn hennar Línu Langsokks? Hvaða ofurhetja er bæði hundur og lögga? Stórskemmtilegt barnabókakviss með dýraþema.
Umsjónaraðili: Alexander apaköttur
Dýralæti og grímugleði
Kl. 14:30 - 15:30 I 2. hæð
Dreymir þig um að prófa að vera páfagaukur eða górilla? Langar þig kannski að skapa glænýja dýrategund, sem gæti til dæmis heitið Grófarmandra?
Skemmtileg smiðja þar sem búnar verða til grímur, innblásnar af dýraríkinu. Börnin fá tækifæri til að vinna með fjölbreytt efni, áferð og liti og skapa sínar eigin dýragrímur.
Leiðbeinandi: Alda Ægisdóttir, landkönnuður og dýrahirðir
Krakkalakkajóga
Kl.14:30 - 15:00 | 2. hæð
Réttu úr þér eins vel og þú getur, líkt og þú værir gíraffi. Farðu síðan niður á fjórar fætur eins og ljón, konungur frumskógarins. Stattu því næst upp, breiddu út risastóran górillufaðminn og ímyndaðu þér að þú sért að faðma stærsta tréð í skóginum.
Kennari: María Shanko, slöngutemjari
Töfrar skrautskriftar
Kl. 14:30 - 15:30 I 2. hæð
Eins og við öll vitum þá kunna dýr ekki að lesa...eða hvað?
Guy Stewart sýnir hvernig draga á til stafs með skrautskrift (kalligrafíu) og leiðbeinir gestum hvernig nota má til þess sérstök verkfæri. Hver veit nema þessi aldagamla kunnátta komi að góðum notum ef gestir villast á Grófareyju og þurfa aðstoð dýranna til að rata aftur heim.
Eyjagroove Djasskrakka
Kl. 15:00 - 16:00 | Bókatorgið 1. hæð
Tónlist ómar reglulega á Grófareyju enda eyjaskeggjar, stórir og litlir, miklir tónlistarunnendur. Því er mikið fagnaðarefni að Djasskrakkar, djassband af eyju sem heitir Mosfellsbær og er staðsett örlítið austar, skipað krökkum á aldrinum 11-16 ára, ætli að leika fyrir ævintýraþyrsta gesti.
Djasskrakkar hafa verið gestgjafar hátíðarinnar Barnadjass í Mosó frá upphafi.
Blómakransagerð
Kl.16:00 - 17:00 | 2. hæð
Á öllum betri eyjum vaxa falleg og litskrúðug blóm. Grófin er þar engin undantekning og gefst ævintýraþyrstum gestum tækifæri til að búa til skemmtilega blómakransa úr pípuhreinsurum, tölum og silkipappír. Tilvalið að taka kransana með heim og skreyta.
Leiðbeinandi: Sigurrós, blómálfur
Ég fíla dilla, dilla
Kl. 17:00 - 18:00 | Bókatorgið 1. hæð
Geta krókódílar dansað salsa? En sebrahestar?
Maestro Jóhannes Agnar Kristinsson leiðir öll dýrin í skóginum út á dansgólfið, tvífætt og fjórfætt, byrjendur og lengra komin og kennir þeim að dilla sér við taktfasta salsatónlist.
Samsöngur með Valla varúlfi
Kl. 18:30 - 19:30 | 1. hæð
The Lion Sleeps Tonight, Welcome to the Jungle, Eye of the Tiger, Krummavísur, Dýrin í Hálsaskógi og öll hin skemmtilegu lögin í söngbókinni.
Syngdu úr þér lungun líkt og þú værir Tarzan eða Jane í frumskóginum og fáðu öll dýrin á staðnum til að syngja með.
Hlæðu eins og hýena með Andra Ívars
Kl. 20:00 - 21:00 | 1. hæð
Þegar ungir ævintýrafarar eru farnir heim í háttinn kallar Andri Ívars grín-andi Grófareyju eldri eldhuga saman. Hlæjum saman eins og hýenur áður en við höldum út í Menningarnóttina sem aldrei sefur.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100