Memmm | Nærandi og skapandi samvera

Það er gaman að hitta aðra fullorðna með lítil börn, syngja saman, leika og læra.
Í samvinnu við Borgarbókasafnið býður Memmm upp á fjölskyldumorgna, opinn leikskóla Memmm Play, alla miðvikudaga kl. 10:00-12:00 á bókasafninu Gerðubergi, efri hæð. Tökum frí yfir sumarið frá byrjun júní og fram í miðjan ágúst.
Skráning er óþörf og öll velkomin en stundirnar eru hugsaðar fyrir fjölskyldur með ungabörn og börn á leikskólaaldri.
Alltaf heitt á könnunni!
Memmm eru félagasamtök sem vinna að fjölskylduvænna samfélagi. Þar vinna áhugasamir einstaklingar að því að skapa tækifæri fyrir fjölskyldur til að njóta samveru og gæðastunda á fjölbreyttan hátt.
Komdu og vertu Memmm!
Allar krílastundir á Borgarbókasafninu
Nánari upplýsingar veitir:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri í Gerðubergi.
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is | 411 6170