Spjallhópur | Stafrænn mínimalismi

Viltu draga úr áráttukenndri skjánotkun og minnka stafrænt áreiti?
Komdu þá í spjallhópinn Stafrænn mínimalismi (e. Digital Minimalism)!

  • Við skoðum heimspekina á bak við stafræna naumhyggju
  • Ræðum hugtök úr bókinni Digital Minimalism: Choosing a focused life in a noisy world eftir Cal Newport.
  • Veltum fyrir okkur aðferðum til að draga úr stafrænni áráttuhegðun eins og 30 daga stafrænni hreinsun og að endurheimta tómstundir

 

Hvenær:
Annan hvern þriðjudag kl. 16:45-18:15.
16. janúar / 30. janúar / 13. febrúar / 27. febrúar / 12. mars / 26. mars

Ekki er nauðsynlegt að mæta í öll skiptin.

Hvar:
Við vínylplötusvæði á 5. hæð í Borgarbókasafninu Grófinni.

Öll velkomin! Athugið að samræðurnar fara fram á ensku.

Vekur þetta áhuga þinn? Það er ekki nauðsynlegt að hafa lesið bókina, bara mæta og taka þátt í áhugaverðum samræðum!

Nánari upplýsingar veitir:

Karl James Pestka
karl.james.pestka@reykjavik.is | 411 6122

Bækur og annað efni