BORGARBÓKASAFNIÐ
Bókasafnasjóður veitti styrk til verkefnisins
Héraðsbókasafn Rangæinga keypti bekkjarsett af bókinni „Ég þori! Ég get! Ég vil! eftir Lindu Ólafsdóttur og unnu nemendur í Hvolsskóla verkefni sem tengdust bókinni.
Skólabókavörður las bókina og ræddi innihald við nemendur í 1. - 5. bekk. Nemendur í 6. bekk lásu og ræddu bókina og gerðu í framhaldi af því textaverk eða veggmyndir með hugrenningum sem vöknuðu við lestur bókarinnar. Úr þessum textaverkum varð flott sýning sem var á Njálu-degi Hvolsskóla og á bókasafninu út nóvember 2025.

Alla miðvikudaga í október mættu nemendur í 7. bekk Hvolsskóla á Héraðsbókasafnið, sem jafnframt er skólabókasafnið þeirra, til að vinna verkefni um sögu kvennabaráttunnar á Íslandi. Þau byrjuðu á því að lesa öll bókina „Ég þori! Ég get! Ég vil!“ eftir Lindu Ólafsdóttur, því næst var þeim skipt í þriggja til fjögurra manna hópa.

Þá öfluðu þau, ásamt listrænum leiðbeinanda Madalenu Abreu, heimilda á netinu sem þau prentuðu út. Útprentið nýttu þau til að gera klippimynd (eða collage) um ákveðið tímabil Íslandssögunnar, 1885 -1899, 1900-1939, 1940- 1975, 1975-1984, 1985-1994, 1995-2004, 2005-2010, 2011-2020 að auki var sérstök klippimynd fyrir Kvennafríið 24. október 1975, Free the nipple byltinguna og Me too byltinguna. Þessar klippimyndir voru svo settar saman og búin til kvikmyndakassi sem var sýndur á Njálu-degi Hvolsskóla og ætlunin að sýna kassann í skólanum og á bókasafninu um ókomna tíð.
Nemendur í 9. bekk lásu bókina og æfðu lagið „Áfram stelpur“ sem þau fluttu óaðfinnanlega á Njálu-degi Hvolsskóla.
Hér er hlekkur á Instagram síðu sem Madalena gerði um verkefnið.