BORGARBÓKASAFNIÐ

Í klúbbum Borgarbókasafnsins gefst tækifæri til þess að skapa skemmtilegar stundir og byggja upp góða vináttu. Í klúbbunum fá börn tækifæri á að spjalla, grúska, búa til sögur, föndra og ýmislegt fleira. Þátttaka er ókeypis en skráning nauðsynleg.
Í Árbænum bjóða starfsmenn safnsins upp á vettvang fyrir börn til að hittast og tengjast í kringum anime. Í klúbbnum er spjallað, teiknað, föndrað, spilað, horft og hvað annað sem tengist anime!
Klúbbur 10-12 ára
Einu sinni í mánuði, föstudaga kl. 15.30-17.00 - Árbæ. Klúbburinn byrjar 25. september og næstu dagsetningar eru: 23. október, 20. nóvember, 18. desember.
Sendið póst á holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is til að skrá ykkur í klúbbinn
Klúbbur 13-16 ára
Klúbburinn verður ekki starfræktur misserið haust 2026.
Klúbbur fyrir skapandi krakka 9-12 ára. Barnabókahöfundarnir Eva Rún Þorgeirsdóttir og Blær Guðmundsdóttir miðla og gefa börnunum verfæri og góð ráð svo börnin geti nýtt sköpunarkraftinn og búið til sögur á sínum eigin forsendum.
Spöngin
Annan hvern þriðjudag kl. 15.30-17.00
Við hittumst: 13. janúar, 27. janúar, 10. febrúar, 24. febrúar, 10. mars, 24. mars og lokahittingur 7.apríl.
Annan hvern þriðjudag kl. 15.30-17.00 Við hittumst: 6. janúar, 20. janúar, 3. febrúar, 17.febrúar, 3. mars, 17. mars og lokahittingur 14. apríl.
Nánari upplýsingar um klúbbana:
Anime
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs - viðburðir
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is
Svakalega sögusmiðjan
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is