BORGARBÓKASAFNIÐ
Marie Štyndlová og Vladimíra Buchtová, sem báðar starfa á The Research Library í Hradec Králové í Tékklandi, sóttu Borgarbókasafnið heim í lok maí 2026. Þær dvöldu í eina viku og fengu kynningar á ýmis konar þjónustu og verkefnum í Grófinni, Gerðubergi, Kringlunni, Spönginni og Úlfarsárdal.
Í sömu viku var tekið á móti fimm öðrum hópum víðs vegar að úr Evrópu sem voru í sömu erindagjörðum; í leit að innblæstri og nýjum hugmyndum. Nokkrar spurningar voru lagðar fyrir þessa góðu gesti og verða svörin birt á heimasíðu og kynnt á samfélagsmiðlum á næstu vikum.

Af hverju valdir þú að kynna þér starfsemi Borgarbókasafns Reykjavíkur?
Vladimíra: „Ég var satt að segja beðin um að hlaupa í skarðið fyrir samstarfsmann sem varð að hætta við ferðina vegna veikinda og ég varð að vera snögg að ákveða hvort ég vildi fara eða ekki. Ég sá svo sannarlega ekki eftir því að fara í ferðina því ég hef alltaf haft áhuga á skandinavískum bókasöfnum.“
Marie: „Sem þátttakandi í Erasmus áætluninni á okkar sviði fannst mér spennandi að líta til norrænu bókasafnanna. Samstarfsfólk mitt hafði heimsótt Finnland, Danmörku og önnur voru á leið til Noregs. Mig langaði að kynnast öðru norrænu landi og vefsíðan ykkar vakti athygli mína.“
Vöktu einhver ákveðin verkefni eða þjónusta áhuga þinn?
Vladimíra: „Sem fagmanneskja í kynningarmálum var ég mjög hrifin af ákveðnum þáttum tengdum því að skipuleggja stærri viðburði, svo sem Framtíðarfestivalið og verkefnið Samveru. Ég átta mig á hvað slík verkefni fela í sér og vinnunni sem þau krefjast, ekki síst út frá sjónarhóli verkefnastjórans. Þar sem ég er einnig kennari hreifst ég mjög af íslenskukennslunni Spjöllum með hreim, og þessari vinalegu og beinu nálgun við nemendurna - sem ég mun hafa í huga og nýta mér í mínum verkefnum.“
Marie: „Almennt séð var ég hrifin af verkefnum sem snúast um stuðning við ólík samfélög. Sér í lagi Spjöllum með hreim sem snýst um að læra íslensku og hitta annað fólk undir mismunandi kringumstæðum. Hvað þjónustu varðar var ég áhugasöm um Umframopnun +.“
Hvaða lærdóm hefur þú dregið af heimsókninni og hvaða þýðingu hafa heimsóknir á borð við þessa fyrir starfshópinn ykkar?
Vladimíra: „Það sem vakti sérstaklega áhuga minn var hugmyndin um að tengja bókasafnið við aðrar stofnanir, líkt og í Úlfarsárdal, þar sem það deilir húsnæði með skóla og sundlaug. Ég var mjög hrifin af konseptinu um opið samfélagsrými og þjónustuna Umframopnun+. Að hafa bókasafnið sem hluta af smærra hverfi (úthverfi) skilar örugglega góðum árangri. Þá er hægt að halda smærri viðburði sem vonlaust væri að skipuleggja í ópersónulegu fjölmennu hverfi. Það er þó ekki um að ræða hljóðlátan, einangraðan stað. Hugmyndin um bókasafn sem keppir ekki um athygli með því að bjóða upp á annars konar þjónustur - er að mínu viti - leiðin áfram. En þetta snýst um að breyta hugarfarinu.
Ég var einnig sérstaklega hrifin af viðburðinum Sögustund við varðeld, sem er mjög óformlegur og gerir það að verkum að eldri börn vilja líka mæta. Yngri kynslóðin þekkir nánast ekki lengur svona samveru, eins og að hlusta á sögur og lesa saman í hóp.“
Marie: „Það er mikilvægt að líta til annarra landa, hvernig þau gera hlutina. Að vera á vettvangi. Að fá fleiri sjónarhorn. Að hitta samstarfsfólk. Að fá innblástur. Skoða hvað vekur áhuga og mögulegt er að innleiða hjá okkur.“
Hvernig getur Borgarbókasafnið bætt sig í hlutverki gestgjafa?
Vladimíra: „Við fengum mjög hlýjar móttökur og dagskráin var sannarlega fjölbreytt. Ég kunni einnig að meta þá hugmynd að leiða saman ólíka hópa bókasafnafólks héðan og þaðan frá Evrópu á sama tíma. Ég mæli mjög með því við stofnanir sem eru að taka á móti hópum. Við vorum mjög ánægð.“
Marie: „Ég var mjög sátt. Við fengum fjölbreytta dagskrá í hendur áður en við komum. Tekið var vel á móti okkur á öllum starfsstöðum. Þið stóðuð ykkur mjög vel í hlutverki gestgjafa.“
Myndir þú mæla með heimsókn á Borgarbókasafnið við starfsfólk annarra bókasafna í heimalandi þínu?
Vladimíra: „Ég myndi algjörlega mæla með heimsókn á bókasöfnin í Reykjavík. Ferðin gaf mér innblástur og reynslu, ekki aðeins faglega heldur líka fyrir mig persónulega.“
Marie: „Ég mæli heils hugar með heimsókn á bókasafnið ykkar, til borgarinnar og landsins. Það er algjörlega þess virði.“
Bestu þakkir fyrir komuna!