BORGARBÓKASAFNIÐ

Spilarðu á hljóðfæri eða stjórnarðu kór og vantar hugmyndir að nýjum verkefnum?
Á fimmtu hæðinni á Borgarbókasafninu í Grófinni er gott nótnasafn fyrir flest hin algengustu hljóðfæri sem og söng, einsöng og kóra, byrjendur og lengra komin.
Á hæðinni er líka píanó sem öllum er velkomið á spila á, já eða glamra ef þú kannt ekki neitt. Bara muna að stinga heyrnatólunum í samband við hjóðfærið og þá geta öll notið saman á bókasafninu, tónlistarunnendur og lestrarhestar.
Hér getur þú séð hvaða nótur eru til á hvaða safni Borgarbókasafnsins. Einnig er hægt að taka frá og fá sent á milli safna þegar þú skráir þig inn á þitt svæði á borgarbokasafn.leitir.is
Nótur má hafa í láni í 30 daga.