Prjónakaffi
Ertu með eitthvað á prjónunum?
Gestir geta bókað að þegar hlátrasköllin glymja og þjóðfélagsmál jafnt sem dægurmál eru brotin til mergjar þá er prjónaklúbbur á svæðinu.
Njóttu þess að prjóna í góðum félagsskap!
- Menningarhúsið Spönginni alla fimmtudaga kl. 13.30 - 15.30
- Menningarhúsið Árbæ alla mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 13.00 -15.00 - Hóparnir í Árbæ eru fullsetnir eins og er.
Við eigum líka mikið úrval af alls kyns bókum og tímaritum um handavinnu sem hægt er að sækja innblástur í og grípa með sér heim.
Og svo er auðvitað alltaf heitt á könnunni...
Nánari upplýsingar eru veittar á staðnum eða:
- í tölvupósti, spongin@borgarbokasafn.is / arbaer@borgarbokasafn.is
- í síma 411 6230 / 411 6250
Materials