Hannyrðastundir
Ertu með eitthvað á prjónunum? Ertu að hekla fallegt sjal eða sauma út púða?
Gestir geta bókað að þegar hlátrasköllin glymja og þjóðfélagsmál, jafnt sem dægurmál eru brotin til mergjar, þá er hannyrðastund á bókasafninu. Öll sem vilja, byrjendur og lengra komin, eru velkomin í notalega stundir, við spjöllum um daginn og veginn, fáum okkur kaffi og sinnum handavinnunni í góðum félagsskap. Engin skráning - bara mæta!
Við eigum til mikið úrval af alls kyns bókum og tímaritum um handavinnu sem hægt er að sækja innblástur í, lesa á safninu og korthafar geta fengið lánað heim. Hér fyrir neðan má sjá sýnishorn af því sem til er en mun fleiri má finna í hillum safnsins.
Spöngin
Hittumst í blágrænu sófunum á annarri hæð, alla fimmtudaga kl. 13:30 - 14:30.
Allan ársins hring nema í júlí og ágúst, þá tökum við sumarhlé.
spongin@borgarbokasafn.is | 411 6230
Úlfarsárdalur
Eigum saman notalega stund alla þriðjudaga kl. 13:00 - 15:00.
Tökum sumarfrí frá 1. júní og hittumst á ný 8. ágúst.
ulfarsa@borgarbokasafn.is | 411 6270
Þrír hannyrðaklúbbar hittast í Borgarbókasafninu Árbæ en eru fullsetnir eins og er.
Sjálfstæðir hannyrðaklúbbar
Langar þig að stofna þinn eigin hannyrðaklúbb í samstarfi við bókasafnið? Þá er um að gera að hafa samband og við finnum honum góðan stað og heppilega tímasetningu.
Einnig geta „heimilislausir“ hannyrðaklúbbar tyllt sér niður á safn að eigin vali þegar grípa á í prjónana eða útsauminn. Gott er þó að tala við starfsmann áður ef hópurinn er fjölmennur til að vera viss um að það skarist ekki á við aðra dagskrá í húsinu.
Nánari upplýsingar veita starfsmenn á söfnunum en einnig er hægt að hringja eða senda línu í tölvupósti.