Ætlar vinahópurinn loksins að láta verða að því að fara í göngu en þú ert ekki viss hvort þér líki að ganga með stafi eða ekki?
Ertu að fara í göngu á morgun og varst að fatta að þú gleymdir stöfunum þínum hjá frænku fyrir norðan?
Borgarbókasafnið Árbæ á í fórum sínum eitt sett af göngustöfum sem korthafar geta fengið lánaða. Stafirnir eru stillanlegir og henta því göngugörpum í öllum stærðum og gerðum. Einnig er hægt að fá stafina senda á önnur söfn Borgarbókasafnsins. Það er gert með því að skrá sig inn á borgarbokasafn.leitir.is eða með aðstoð starfsfólks á öllum átta söfnunum.