BORGARBÓKASAFNIÐ

Ljóðaskrif, sviðsframkoma, flutningur og lokaútkoma.
Sviðslistafólkið Jón Magnús Arnarsson, Steingrímur Teague, Steinunn Arinbjarnardóttir og Steinunn Jónsdóttir fara í saumana á þessu skemmtilega listformi og gefa ljóðaslömmurum framtíðar góð ráð.
Hér fyrir neðan eru tenglar á myndbönd sem eru tilvalin fyrir þau sem hafa áhuga á að taka þátt í Ljóðaslammi Borgarbókasafnsins.
Jón Magnús Arnarsson, leikari og ljóðaslammari, einn af forsprökkum ljóðaslamms-senunar á Íslandi. Hann bar sigur úr býtum í Ljóðaslammi Borgarbókasafnsins árið 2017 og hefur í kjölfarið ferðast um allan heim og flutt ljóð í keppnum, bókmenntaviðburðum og ýmsum Poetry Slam uppákomum, enda er ljóðaslamm-senan víða erlendis bæði stór og fjölbreytt.
Steingrímur Teague, tónskáld, textahöfundur og söngvari, og Jón Magnús Arinbjarnarson, ljóðaslammari og leikari, gefa góð ráð um hvernig ljóð henta í flutningi ljóðaslamms.
Steinunn Arinbjarnardóttir, leikkona, og Jón Magnús Arinbjarnarson leikari og ljóðaslammari, fara yfir það helsta sem hafa þarf í huga varðandi sviðsframkomu í ljóðaslammi.
Tónlistarkonan Steinunn Jónsdóttir og leikarinn og ljóðaslammarinn, Jón Magnús Arnarsson, fara yfir helstu atriði sem gott er að tileinka sér við flutning ljóðaslamms.