BORGARBÓKASAFNIÐ

Borgarbókasafninu barst á dögunum bókagjöf frá Anh Ngoc, nemanda í Kvennaskólanum í Reykjavík, sem vill vekja áhuga barna og ungmenna á vísindum og tækni.
Anh Ngoc, nemi í Kvennaskólanum í Reykjavík hefur undanfarið verið að færa bókasöfnum bók sem hún vill gjarnan koma til áhugasamra ungra vísindamanna.
Anh hefur lengi haft brennandi áhuga á raungreinum og stofnaði í tengslum við það verkefnið „STEM fyrir framtíðina“ sem hefur það markmið að vekja áhuga ungmenna á tækni og raungreinum. Verkefnið fékk styrk frá Reykjavíkurborg og Eflu til að bjóða upp á vísindasmiðjur fyrir börn á bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu.
Einnig skrifaði Anh bókina Ævintýri í Vísindaskógi sem fjallar um þrjú dýr sem nýta þekkingu sína í STEM til að skapa skemmtileg tæki og tól. Bókin skiptist í þrjá kafla og í lok hvers kafla eru gagnleg myndbönd sem sýna hvernig hægt er að búa til tólin sem fjallað er um í hverjum kafla.
Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Anh kom færandi hendi á Borgarbókasafnið í Grófinni. Frá vinstri: Barbara Guðnadóttir, safnstjóri, Anh, höfundur bókarinnar og Anna Magnúsdóttir Eirúnardóttir sérfræðingur barnastarfs í Grófinni.
Fljótlega verður hægt að fá bókina lánaða á bókasöfnunum.