BORGARBÓKASAFNIÐ

Óformleg samverustund áhugafólks um handavinnu af öllu tagi.
Þátttakendur geta heklað, prjónað, saumað út eða sinnt annarri handavinnu og spjallað saman á meðan. Upplagt að skiptast á uppskriftum, fá ráð hjá öðrum, spá og spekúlera í handverkinu nú eða ræða landsins gagn og nauðsynjar.
Við hittumst einn sunnudag í mánuði frá kl. 13:00 - 15:00 og eigum saman rólega stund í notalegu umhverfi.
Gott úrval af handvinnubókum og -blöðum er á staðnum og kaffi á könnunni.
Verið velkomin!
Nánari upplýsingar veitir:
Katrín Guðmundsdóttir
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | 411 6250