BORGARBÓKASAFNIÐ
Leynast gallabuxur í skápnum hjá þér sem verða ekki notaðar aftur? Er þá ekki tilvalið að gera eitthvað nytsamt úr þeim?
Í smiðjunni búum við til buddu eða litla körfu sem hægt er að geyma ýmislegt í, s.s. snyrtivörur, liti, spjaldtölvu eða eitthvað allt annað. Við sníðum, saumum og skreytum þær þannig að hver þeirra verður einstök.
Guðrún Borghildur textílhönnuður leiðbeinir þátttakendum. Hún er menntaður lífeindafræðingur en hefur alla tíð verið með ástríðu fyrir sköpun. Vörur sínar selur hún m.a. í Kirsuberjatrénu.
Guðrún leggur áherslu á endurnýtingu í hönnun sinni enda eru hráefnisbirgðir heimsins ekki endalausar. Hún notar margs konar textíl við sköpunina, s.s. gamla leðurjakka, silkiföt og jafnvel gömul tjöld. Að þessu sinni eru gallabuxur eða annar fatnaður úr gallaefni viðfangsefnið.
Þátttakendur koma með gallabuxur með sér sem efnivið. Eitthvað af skrauti, tölum o.fl. sem hægt er að nota, verður á staðnum en fólk er þó hvatt til að taka með sér eitthvað sniðugt til að skreyta með.
Borgarbókasafnið er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.
Sjá https://www.makeathek.eu/
Nánari upplýsingar veita:
Katrín Guðmundsdóttir, deildarstjóri Borgarbókasafninu Árbæ
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | 411 6250
Guðrún Borghildur Ingvarsdóttir, textílhönnuður
gudrunborghildur@simnet.is | 849 8022
www.gudrunborghildur.is