Fræsafn Borgarbókasafnsins
Ókeypis fræ
Taktu fræ – Ræktaðu fræ – Gefðu fræ
Hvað er Fræsafnið?
Fræsafnið er lítið svæði á bókasafninu þar sem er hægt að ná sér í ókeypis fræ til ræktunar. Í boði er gott úrval fræja til að rækta matjurtir, kryddjurtir, salöt, blóm, plöntur og ýmislegt fleira.
Hvar er Fræsafnið?
Eftirfarandi söfn Borgarbókasafnsins eru með Fræsafn:
Árbær, Gerðuberg, Grófin, Kringlan og Spöngin.
Átt þú afgangs fræ?
Við tökum gjarnan við afgangs fræjum í merktum umslögum í afgreiðslu safnanna.
Ertu að taka þín fyrstu skref í ræktun?
Við eigum frábært úrval af garðyrkjubókum á söfnum okkar og starfsfólk okkar er alltaf til í að veita góð ráð og spjalla um ræktun.
Sjáumst á Fræsafninu!
Árbær - Gerðuberg - Grófin - Kringlan - Spöngin
Meira um Fræsafnið
Við leggjum áherslu á svæðisaðlöguð fræ til að styðja enn frekar við staðbundna ræktun, sem stuðlar að sjálfbærara og sterkara matvælakerfi. Auk þess að dreifa fræjum mun Fræsafnið kynna aðferðir til að geyma fræ og hvetja áhugasöm til að varðveita og deila tegundum sem hafa aðlagast íslensku umhverfi. Með þessu tryggjum við varðveislu seigra tegunda sem hafa sýnt að þær þoli breyttar aðstæður.
Reglulega verða haldnir viðburðir þar sem við munum deila ráðum og visku tengdum ræktun og auðvitað fræjum og plöntum.
Fræsöfn eru orðin æ algengari kostur á bókasöfnum og hefur sýnt sig að þau eru frábær leið til að tengja saman samfélög í gegnum garðyrkju. Fræsafnið felur í sér sterka sýn um tengt, sjálfbært og sjálfbjarga samfélag. Með því að faðma náttúruna, hlúa að sjálfbærum starfsháttum og efla fullveldi matvæla, táknar verkefnið skref umbreytingar í átt að sterkari framtíð.
Nánari upplýsingar:
Martyna Karolina Daniel, sérfræðingur fjölmenningarmála
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is