BORGARBÓKASAFNIÐ

Fræðakaffi er viðburðaröð sem fer fram á Borgarbókasafninu Spönginni og hefur notið mikilla vinsælda. Fræðafólk, rithöfundar og sérfræðingar ausa úr skálum þekkingar sinnar, í notalegu umhverfi bókasafnsins. Umfjöllunarefnin eru fjölbreytt og ættu því allir að geta fundið eitthvað sem höfðar til þeirra, hverju sinni.
Fræðakaffi fer fram einn mánudag í mánuði frá kl. 16:30 - 17:30 frá hausti og fram á vor.
Aðgangur er ævinlega ókeypis og öll velkomin.
Hægt er að fylgjast með dagskránni í viðburðadagatali Borgarbókasafnsins hér á heimasíðunni og á Facebook.
Nánari upplýsingar veitir:
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6242