BORGARBÓKASAFNIÐ

Gleðin var við völd á Borgarbókasafninu Gerðubergi þegar nýjar bækur á filippseysku og bisaya bættust við safnkostinn.
Nýverið bættust 100 nýjar bækur á filippseysku og bisaya við safnkost Borgarbókasafnsins Gerðubergi. Í tilefni af því stóð filippseyska móðurmálsfélagið InangWika fyrir skemmtilegri sögustund á safninu, sem yfir 50 manns sóttu og áttu saman ánægjulega stund þar sem jafnframt var boðið upp á veitingar, dans og föndur.
Nýju bækurnar eru kærkomin viðbót við safnkost Borgarbókasafnsins, sem leggur áherslu á að efla læsi meðal allra barna og tryggja að fólk af ólíkum uppruna hafi aðgang að bókum. Að læra móðurmál sitt er ekki aðeins réttur barna, heldur styrkir það læsi fjöltyngdra barna og auðveldar þeim að læra önnur tungumál, þar á meðal íslensku. En á Filippseyjum eru töluð yfir 170 tungumál og eru filippseyska og bisaya þau tungumál sem flest tala.
Borgarbókasafnið færir InangWika innilegar þakkir fyrir frábæran viðburð í Gerðubergi og þakkar jafnframt öllum sem mættu og tóku þátt!

