Flottustu myndirnar

Í febrúar og mars er börnum á aldrinum 6-12 ára boðið að kjósa hvaða myndir þeim þykja flottastar úr barna- og unglingabókunum.
Myndir segja meira en þúsund orð! Myndir lýsa því sem er að gerast í sögunni án orða. Þær geta verið fyndnar, óhugnalegar, sorglegar eða sýnt okkur skemmtileg smáatriði sem ekki standa í textanum.
Börn í 1.-7. bekk eru hvött til að skoða vel myndirnar í bókunum eftir myndhöfunda sem búa og starfa á Íslandi. Tilnefndar bækur eru á veggspjaldinu Flottustu myndirnar. Börnin velja þrjár bækur með þeim myndum sem þeim finnst skemmtilegastar, áhugaverðastar eða bestar af hvaða ástæðu sem er. Kosningin er samhliða kosningunni Bókaverðlaun barnanna.
Opið verður fyrir kosningu 9. febrúar - 13. mars 2026. Börnin geta merkt kjörseðlana og hvetjum við söfnin til þess að draga út heppinn þátttakenda og veita viðurkenningu fyrir þátttöku. Kjörseðla til útprentunar fyrir almennings- og skólabókasöfn má nálgast hér fyrir neðan.
Við biðjum öll þátttökusöfn og -skóla um að skrá atkvæðin sín í talningarskjal og senda sínar lokatölur fyrir 19. mars 2026 til verkefnastjóra verkefnisins.
Myndlýsingarnar sem verða í efstu fimm sætunum verða í kosningu Sagna á vef Sagna - sogur.is. Verðlaunahátíðin verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV 30. maí 2026.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- unglingastarfs - lestrarhvatning og fræðsla
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | s . 411-6146
Tilnefningar og verðlaun
2026 (í stafrófsröð) - Vinningshafi á Sögum - verðlaunahátíð barnanna er feitletraður.
- Birtingur og símabannið mikla / myndhöfundur Elías Rúni
- Ekki fá þér hamstur / myndhöfundur Addi nabblakusk
- Orri verður óstöðvandi / myndhöfundur Þorvaldur Sævar Gunnarsson
- Skólastjórinn / myndhöfundur Elín Elísabet Einarsdóttir
- Ævintýri VÆB : væb verður VÆB / myndhöfundur Addi nabblakusk
2025 (í stafrófsröð) - Vinningshafi á Sögum - verðlaunahátíð barnanna er feitletraður.
- Bekkurinn minn - Hendi! / myndhöfundur Iðunn Arna Björgvinsdóttir
- Fíasól í logandi vandræðum / myndhöfundur Halldór Baldursson
- Orri óstöðvandi: Heimsfrægur á Íslandi / myndhöfundur Þorvaldur Sævar Gunnarsson
- Skólaslit 3 - Öskurdagur / myndhöfundar Ari H.G. Yates og Lea My Ib
- Stúfur og Björgunarleiðangurinn / myndhöfundur Blær Guðmundsdóttir