BORGARBÓKASAFNIÐ

Allar upplýsingar um make-a-thek verkefnið.
Hvernig getum við verið ábyrgir fatakaupendur og notendur? Er endurunnið pólýester umhverfisvænna en bómull? Hvað verður um fötin okkar þegar við hættum að nota þau? Af hverju líður okkur eins og sum föt séu framlenging af okkur sjálfum?
Ragna S. Bjarnadóttir, lektor og fagstjóri við fatahönnunarbraut Listaháskóla Íslands flytur erindi og leiðir spjall um textílefni, fatnað, fataskápinn og hringrásarhagkerfið.
Borgarbókasafnið er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu. Sjá https://www.makeathek.eu/
Nánari upplýsingar veitir:
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri í Gerðubergi
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is | 411 6170