Umsókn um sýningarhald

Hér fyrir neðan getur þú lagt inn umsókn um sýningarhald á Borgarbókasafninu.

Ef þú vilt heldur sækja umsóknareyðublað á PDF og senda í tölvupósti ásamt fylgigögnum á syningar@borgarbokasafn.is þá er það velkomið: Microsoft Office document icon umsoknareydublad_syningarhald.doc.

Sýningarnefnd Borgarbókasafnsins fundar reglulega til að fara yfir og svara umsóknum sem berast. Sýningarnefnd áskilur sér rétt til að leggja línur og móta sýningarhald Borgarbókasafnsins út frá áherslum í viðburðadagskrá á hverjum tíma og velur úr umsóknum í samræmi við þær.

Athugaðu að:

- Verkin á sýningunni verða valin í samráði við og sett upp af verkefnastjóra Borgarbókasafnsins.

- Öll vinna og undirbúningur við uppsetningu á sýningunni er sýnanda að kostnaðarlausu og ekki er tekin leiga fyrir sýningaraðstöðuna.

- Með umsókn á að fylgja ferilskrá listamanns og myndir af völdum verkum, sjá neðst á eyðublaðinu.

- Í umsókn ber að setja stutta lýsingu á sýningarhugmyndinni.

Hér getur þú skrifað inn hvaða tímabil þú hefur hugsað þér fyrir sýninguna eða sýningarnar.