BORGARBÓKASAFNIÐ
Verið hjartanlega velkomin í gjafaöskjugerð í Borgarbókasafninu Árbæ! Við ætlum að búa til gjafaöskjur með origami aðferð sem getur nýst vel ef áhugi er á að búa til gjafir frá eigin hendi. Frábær leið til að gera gjafir persónulegri og umhverfisvænni! Eigum saman notalega stund þar sem leiðbeinandi aðstoðar við gjafaöskjugerðina. Leiðbeinandi verður á staðnum til aðstoðar eftir þörfum og allt sem þarf til föndursins verður til taks. Það er velkomið að koma með sinn eigin efnivið og áhöld til að setja persónulegan svip á sköpunina. Smiðjan hentar bæði fullorðnum og eldri börnum. Yngri börn eru velkomin í fylgd fullorðinna sem geta aðstoðað. Við hvetjum fullorðna til að mæta og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín í notalegri og skemmtilegri stund. Aðgangur er ókeypis og skráning er óþörf. Tilbúningur er viðburðarröð sem fer fram á: 📍 Borgarbókasafninu Spöng fyrsta miðvikudag hvers mánaðar 📍 Borgarbókasafninu Árbæ annan þriðjudag hvers mánaðar 📍 Borgarbókasafninu Úlfarsárdal fyrsta fimmtudag hvers mánaðar. Nánari upplýsingar veitir: Heiðrún G. Viktorsdóttir | sérfræðingur heidrun.greta.viktorsdottir@reykjavik.is
Þriðjudagur 10. nóv. 2026 – 15:30-17:30
Borgarbókasafnið Árbæ
Hraunbær 119, 110 Reykjavík