BORGARBÓKASAFNIÐ
Í september byrjum við nýjan vetur á Jarðnæði eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur en hún fékk fjöruverðlaunin árið 2011 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Bókin er sjálfsævisöguleg, byggð á samræðum Oddnýjar við sex einstaklinga í lífi hennar og skrifuð í flæðiskenndu dagbókarformi. Til skoðunar er ástin, umhverfisvernd og hvernig er rétt að haga lífi sínu. Umfjöllun um bókina má finna í: Bók vikunnar - https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2020-11-05-jardnaedi-oddny-eir-aevarsdottir Kiljunni - https://www.youtube.com/watch?v=Ee1FjkvU-lE Spássíunni - https://timarit.is/page/7256467?iabr=on DV - https://timarit.is/page/6419163?iabr=on
Leshringurinn Sólkringlan hittist venjulega þriðja fimmtudag í mánuði kl. 17.30-18.30 í Borgarbókasafninu Kringlunni, frá september til maí. Dagskrá haustsins 2026 er eftirfarandi: 17. september: Jarðnæði eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur 15. október: Hægara pælt en kýlt eftir Magneu J. Matthíasdóttur 19. nóvember: Lungu eftir Pedro Gunnlaug Garcia 17. desember: Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson Umsjón og skráning: Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204
Fimmtudagur 17. sept. 2026 – 17:30-18:30
Borgarbókasafnið Kringlunni
Listabraut 3, 103 Reykjavík