BORGARBÓKASAFNIÐ
Vinnustofa fyrir fjölskyldur Skapandi vinnustofa fyrir fjölskyldur þar sem við prófum að „vibe-kóða“ okkar eigin tölvuspil með hjálp gervigreindar. Markmiðið er að nýta tölvuleikjasköpun til að efla gervigreindarlæsi og læra hvernig við getum notað gervigreindina til að koma eigin hugmyndum í framkvæmd og hafa áhrif á samfélagið okkar. Skráning er hafin hér að ofan. Í vinnustofunni skoðum við tæknina með gagnrýnum augum og veltum fyrir okkur hvenær hún nýtist okkur vel og hvar takmörk hennar liggja. Hvenær flýtir hún fyrir sköpunarferlinu og hvenær getur hún dregið úr frumleika, sjálfstæðri hugsun og eigin sköpun. Þórunn Vignisdóttir stýrir vinnustofunni en hún hefur starfað um árabil á almenningsbókasöfnum bæði hér í Reykjavík og Stokkhólmi. Hún hefur sérhæft sig í stafrænu læsi, miðlalæsi og skapandi notkun tækninnar með börnum og ungmennum. Viðburðurinn er hluti af viðburðaröðinni Mjúkt net – samfélagslegt miðlalæsi sem hlaut styrk úr Bókasafnasjóði. Borgarbókasafnið býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og fjölskyldur dagana 11.- 18. október sem upptakt að miðlalæsisviku í öllum átta söfnunum. Nánari upplýsingar veitir: Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir verkefnastjóri barna- og unglingastarfs - lestrarhvatning og fræðsla ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146
Laugardagur 17. okt. 2026 – 14:00-16:00
Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41, 112 Reykjavík