BORGARBÓKASAFNIÐ

Í samstarfi við Borgarleikhúsið býður Borgarbókasafnið í Kringlunni upp á sérstaka jólasögustund laugardaginn 14. nóvember kl. 13. Þar verður lesið upp úr hinni sívinsælu jólabarnabók Þegar Trölli stal jólunum sem Borgarleikhúsið setur á fjalirnar um þessar mundir og er frumsýnt 7. nóvember. Það eru öll velkomin í Tröllastemningu fyrir jólin! Nánari upplýsingar veitir: Katla Ársælsdóttir, sérfræðingur katla.arsaelsdottir@reykjavik.is - s: 411-6200
Laugardagur 14. nóv. 2026 – 13:00-14:00
Borgarbókasafnið Kringlunni
Listabraut 3, 103 Reykjavík