BORGARBÓKASAFNIÐ
Samvera eru vikulegir viðburðir sem sameina íslenskunema og innfædda til að spjalla, kynnast og læra hver af öðrum. Alla föstudaga 4. september - 4. desember, kl. 11.00 til 13.00, Gerðuberg Saman kynnumst við yfir kaffibolla og spjöllum til að æfa okkur í tungumálinu í öruggu og vinalegu umhverfi eða bara til að kynnast nýju fólki. Stundum förum við í léttan göngutúr í nágrenninu og í Elliðaárdalnum. Þegar veðrið er mjög slæmt erum við inni til að lesa fréttir á auðskiljanlegri íslensku, ræða um hvað er að gerast á Íslandi og læra um mikilvæg málefni sem gætu haft áhrif á okkur. Einnig verður í boði að spila borðspil. Bókasafnið er á efri hæðinni í húsi við Gerðuberg 3-5 í Breiðholti. Strætóar: 3, 4, 12, 17 (stoppistöð: FB). Viðburðirnir eru leiddir af kennurum í íslensku sem annað mál. Þátttaka ókeypis, engin skráning, bara mæta. Frekari upplýsingar: Fanny Sissoko - fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is
Föstudagur 4. sept. 2026 – 11:00-13:00
Borgarbókasafnið Gerðubergi
Gerðuberg 5, 111 Reykjavík