BORGARBÓKASAFNIÐ
Notalegar samverustundir fyrir þau sem vilja æfa sig að tala íslensku í vinalegu umhverfi. Æfðu íslenska orðaforðann þinn og lærðu ný orð í leiðinni með því að spila skemmtileg borðspil við önnur sem eru einnig að læra málið. Reynslumiklir kennarar á staðnum til að aðstoða ef þarf. Öll velkomin - líka byrjendur. Nánari upplýsingar veitir: Hildur Björgvinsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is | s: 411 6116
Laugardagur 7. nóv. 2026 – 11:30-13:30
Borgarbókasafnið Grófinni
Tryggvagata 15, 101 Reykjavík