BORGARBÓKASAFNIÐ
Felix Bergsson kemur í heimsókn til okkar og les úr nýjasta ævintýri Freyju og Frikka - Leynifélag í lífsháska! Fyrst komu sögurnar um Freyju og Frikka inn á Storytel en á síðasta ári kom fyrsta bókin, Drottningin af Galapagos, út í bókarformi. Nú er komið að nýjum ævintýrum tvíburanna ráðagóðu en að þessu sinni fara þau í sitt hvora áttina og lenda auðvitað í mögnuðum og æsispennandi ævintýrum ásamt vinum sínum í leynifélaginu Púkablístrunni. Leikurinn berst frá Reykjavík til Alsír og dularfull skuggavera undirbýr hræðileg skemmdarverk. Ná krakkarnir að bjarga málunum áður en allt fer í bál og brand? Öll velkomin í skemmtilega lestrarstund! Nánari upplýsingar veitir: Agnes Jónsdóttir, sérfræðingur agnes.jonsdottir@reykjavik.is | 411 6250
Sunnudagur 22. nóv. 2026 – 13:00-14:00
Borgarbókasafnið Árbæ
Hraunbær 119, 110 Reykjavík