BORGARBÓKASAFNIÐ
Fögnum sumrinu og skiptumst á plöntum! Langar þig í nýjar plöntur eða blóm á heimilið? Nú er tækifæri til að taka afleggjara, grisja blómapottasafnið og kíkja við í Gerðuberg. Allar plöntur velkomnar. Þú getur komið með afleggjara, pottaplöntur, blómapotta og jafnvel garðáhöld! Hver veit nema þú takir svo nýja plöntu með þér heim. Nánari upplýsingar veitir: Atli Pálsson, sérfræðingur atli.palsson@reykjavik.is | 411-6170
Laugardagur 30. maí 2026 – 10:00-17:00
Borgarbókasafnið Gerðubergi
Gerðuberg 3, 111 Reykjavík