BORGARBÓKASAFNIÐ
Taktur og texti er tónlistarsmiðja sem Steinunn Jónsdóttir og Hrafnkell Örn Guðjónsson leiða. Smiðjan er byggð á lagasmíða áfanga sem þau kenna í Fellaskóla þar sem raftónlist mætir íslenskri textagerð. Þátttakendur fá góða innsýn inn í það hvernig lag verður til með því að semja saman takt í tölvuforriti og texta við með dyggri aðstoð leiðbeinandanna. Þá fá þau sem áhuga hafa að spreyta sig á því að taka upp söng eða rapp og útkoman verður lag samið og flutt af börnunum sjálfum. Smiðjan er fyrir börn fædd 2014, 2015 , 2016 og 2017. Fullbókað er í smiðjuna, hægt er að skrá sig á biðlista á Abler, sjá skráningarhlekk hér fyrir ofan. Smiðjan er þannig góður grunnur fyrir laga- og textahöfunda framtíðarinnar og í henni öðlast börnin hin ýmsu tæki og tól sem þau geta nýtt sér í sköpunarferlinu. Þátttakendur þurfa ekki að hafa neinn grunn í tónlistar- eða textagerð, bara brennandi áhuga á því að prófa sig áfram og vera tilbúin að leyfa sköpunarkraftinum að fá lausan tauminn. Þau sem spila á hljóðfæri mega þó endilega taka þau með sér. aman hafa þau Keli og Steinun farið víða um land og samið tónlist með íslenskum börnum og ungmennum. Nánari upplýsingar veitir: Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri & staðgengill safnstjóra gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100
Mánudagur 15. júní 2026 – 10:00-13:00
Borgarbókasafnið Grófinni
Tryggvagata 15, 101 Reykjavík