BORGARBÓKASAFNIÐ
Nodebook Quests er röð ævintýralegra dagbókar- og skrifvinnustofa þar sem könnun og upplifun verða að texta. Í hvert skipti bíður þátttakenda nýr leiðangur — sem leiðir okkur út í borgina, um bókasafnið eða stundum miklu nær: inn á við. Engin reynsla af skrifum er nauðsynleg — komdu bara með forvitnina og sjáðu hvert leiðangurinn leiðir þig. Eftir því sem líður á seríuna verður textum sem verða til í leiðöngrunum safnað saman í sameiginlega Nodebook-útgáfu (með leyfi hvers höfundar.) Fyrsta ritunarverkefnið er leyndarmál þar til viðburðurinn hefst. Þegar þú mætir á staðinn færðu úthlutað verkefni og leggur því næst af stað í lítinn leiðangur og snýrð svo aftur til að færa það sem þú uppgötvaðir í orð. Opið öllum á öllum aldri. Boðið verður upp á snarl og kaffi á staðnum. Skoða nánar: nodebook.cc Instagram: @nodebook.cc Nánari upplýsingar veitir: Martyna Karolina Daniel Verkefnastjóri – Aðgengi og samfélagsleg þátttaka martyna.karolina.daniel@reykjavik.is
Sunnudagur 1. nóv. 2026 – 13:00-15:00
Borgarbókasafnið Grófinni
Tryggvagata 15, 101 Reykjavík