BORGARBÓKASAFNIÐ
Laugardaginn 12. september snýr Guðmundur Pétursson aftur í gamla hverfið sitt og heldur ókeypis tónleika í Gerðubergi. Guðmundur er einn fremsti gítarleikari landsins og hefur starfað við tónlist frá unglingsaldri. Á löngum og fjölbreyttum ferli hefur hann leikið með ótal íslenskum og erlendum tónlistarmönnum og tekið þátt í margvíslegum verkefnum, bæði hér heima og víða um heim. Samhliða störfum sínum sem gítarleikari hefur Guðmundur verið iðinn við eigin tónlistarsköpun og hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin oftar en einu sinni, nú síðast fyrir plötuna Wandering Beings árið 2024. Á tónleikunum verður Guðmundur einn með gítarinn og býður gestum inn í sinn einstaka tónlistarheim. Hann leikur eigin tónsmíðar, blúslög og valin verk af plötum sínum, meðal annars verðlaunaplötunni Wandering Beings. Guðmundur bjó í Breiðholtinu á unglingsárum sínum og á sterkar taugar til hverfisins. Þetta er í annað sinn sem hann heldur tónleika í Gerðubergi. Tónleikarnir hefjast kl. 15:00 og aðgangur er ókeypis. Öll hjartanlega velkomin!
Laugardagur 12. sept. 2026 – 15:00-16:00
Borgarbókasafnið Gerðubergi
Gerðuberg 3, 111 Reykjavík