BORGARBÓKASAFNIÐ

Svakalega lestrarkeppnin er lestrarátak fyrir krakka í 1. - 7. bekk um land allt. Í tilefni af þessu lestrarátaki ætlum við að blása til lestrarstundar hjá okkur á bókasafninu þar sem við erum búin að útbúa notalegt lestrarhorn fyrir börnin. Við ætlum að bjóða upp á djús og kex og hvetjum öll börn sem eru í 1.-7. bekk að koma og finna sér bók á safninu og ná sér í nokkrar lestrarmínútur. Allir skólar geta tekið þátt og keppa um hver les mest á tímabilinu 15. september til 6. október 2026. Markmið keppninnar er að auka lestraránægju barna. Í keppninni skrá skólar niður hversu lengi nemendur lesa og senda inn tölur í lok keppninnar. Skólinn sem les í flestar mínútur sigrar keppnina og hreppir titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins ásamt því að fá glæsileg bókaverðlaun. Allar frekari upplýsingar er hægt að sjá á sogusmidjan.is Nánari upplýsingar veitir: Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is
Miðvikudagur 16. sept. 2026 – 16:00-17:30
Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41, 112 Reykjavík