BORGARBÓKASAFNIÐ

Handverksfólk í Grafarvogi býður gestum og gangandi á handverksmarkað á Borgarbókasafninu í Spönginni. Á markaðnum verður ýmislegt fallegt í boði. Má þar nefna prjónað og heklað handverk, prjónavörur, tréverk, myndlist, keramik, handunnin kort og skartgripi, jólagjafapoka úr endurnýttum textíl og púsl-jóladagatöl. Á staðnum verður einnig ljósmyndari sem býður upp á stuttar myndatökur. Öll velkomin! Nánari upplýsingar: Silja Rut Sigurfinnsdóttir, skipuleggjandi markaðarins siljaruts@gmail.com Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafni Spönginni katrin.gudmunsdottir@reykjavik.is
Laugardagur 21. nóv. 2026 – 11:00-16:00
Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41, 112 Reykjavík