BORGARBÓKASAFNIÐ

Samtal um skapandi greinar er röð óformlegra funda sem Rannsóknasetur skapandi greina stendur að í samvinnu við CCP. Með fundaröðinni vill RSSG skapa samræðuvettvang áhugafólks um skapandi greinar með því að tengja saman hagaðila í einkageiranum, akademíunni og frá stofnunum og stjórnsýslunni og efla þannig umræðuna um menningu og skapandi greinar.
Martyna Karolina Daniel, verkefnastjóri aðgengis og samfélagslegrar þátttöku á Borgarbókasafninu tók þátt í umræðunni: horfa hér.
Er hægt að rýna í hvernig skapandi starfsemi mótar samfélagslegar breytingar og hvort þær séu mælanlegar? Hvernig getum við greint og metið áhrif skapandi greina á samfélagið og einstaklinga? Geta mælingar á samfélagsáhrifum skapandi greina varpað nýju ljósi á gildi þeirra í samtímanum? Geta aðferðir til mats á samfélagsáhrifum opnað fyrir nýja sýn á hlutverk skapandi greina?
RSSG, í samstarfi við CCP, Listaháskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Jafnréttisdaga, stóð fyrir samtali um mælingu á samfélagsáhrifum skapandi greina fimmtudaginn 5. febrúar.
Þorbjörg Daphne Hall, prófessor í tónlistarfræðum við LHÍ, flutti erindi um þær aðferðir sem notaðar eru í rannsóknarverkefninu Building Bridges Through Collaboration við að meta samfélagsáhrif. Verkefnið snýr að því að rannsaka samfélagsmiðuð tónlistarverkefni, aðferðir og áhrif þeirra á þátttakendur.
Lara Hoffmann, nýdoktor við HÍ og sérfræðingur við Rannsóknamiðstöð HA, kynnti þær aðferðir sem notaðar eru í samstarfsverkefni Rannsóknaseturs skapandi greina og LHÍ til að meta samfélagsáhrif skapandi greina. Verkefnið er tilraunaverkefni þar sem metin eru áhrif skapandi greina á einstaklinga og samfélög og byggist á eigindlegum viðtölum og megindlegri könnun.
Í kjölfarið stýrði Þorbjörg pallborði sem í sátu:
Martyna Karolina Daniel, verkefnastjóri aðgengis og samfélagslegrar þátttöku á Borgarbókasafni
Lara Hoffmann, nýdoktor við HÍ og sérfræðingur við Rannsóknamiðstöð HA
Hlynur Jónasson, verkefnastjóri Kúnstpásu