Matyas McDaniel
Matyas McDaniel sýnir ljósmyndir

Information about the event

Time
All day
Price
Free
Target
Everyone
Language
-
Exhibitions

Sýning | Ferðamaður – Utazó – Voyager

Wednesday September 17th 2025 - Saturday October 4th 2025

Matyas McDaniel sýnir ljósmyndir sem teknar hafa verið á síðust fjórum árum en það er sá tími sem hann hefur af ástríðu stundað listformið.

Matyas sem er aðeins 17 ára gamall, heillaðist í upphafi af því hvernig myndavélin getur fangað ljós og umbreytt því í mynd. Andlitsmyndir, arkitektúr og staðir sem náttúran hefur tekið aftur til sín er það sem hann hefur mest verið að vinna með að undanförnu. Form, línur og rúmfræði leynast bæði í manngerðu og náttúrulegu umhverfi. Flestir ættu að geta tengt myndefnið við einhverjar minningar úr lífi sínu og notið þeirra á sinn hátt.

Matyas fæddist í Búdapest í Ungverjalandi og hefur síðustu 9 ár búið í Reykjavík og gengið í Landakotsskóla. Áhugi hans á ljósmyndun hófst með því að taka myndavélar í sundur og skoða vélbúnaðinn innan í þeim. Hann hefur notað bæði aldargamlar filmumyndavélar og stafrænar myndavélar. 

 

Viðburðurinn á facebook 

 

Nánari upplýsingar veitir:

Halldór Óli Gunnarsson
Borgarbókasafninu Spönginni 
halldor.oli.gunnarsson@reykjavik.is