Opnun Inclusive Public Spaces
Publication Launch | Inclusive Public Spaces

Information about the event

Time
16:00 - 19:00
Price
Free
Target
Adults
Talks & discussions

Útgáfuhóf | Inclusive Public Spaces

Thursday September 3rd 2020

Skráning er á allflesta viðburði Borgarbókasafnsins og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna. Sjá nánar hér

  • Staðsetning viðburðar: Bókatorgið á 1. hæð í Grófinni
  • Hámarksfjöldi gesta: 30 - Sjá skráningarform neðst á síðunni.
  • Boðið er upp á léttar veitingar.
  • Viðburðinum verður streymt á Facebooksíðu Borgarbókasafnsins.

 

Er fjölbreytileiki eitthvað sem við getum fundið fyrir, séð, heyrt eða bragðað á? Hvaða áhrif hefur aukinn fjölbreytileikinn á okkur, finnum við fyrir ónotatilfinningu og óöryggi varðandi eigin forréttindi? Hvernig bregst samfélagið við, þegar sagt er frá persónulegum upplifunum af mismunun og skort á aðild að mótun samfélagsins? Fyllumst við krafti til að skapa nýjar víddir, sem rúma krefjandi samtöl?


Við fögnum útgáfu Inclusive Public Spaces sem inniheldur
frásagnir af kerfisbundnum rasisma, valdastrúktúr og forréttindum.

Til verksins leggur hópur listafólks, rithöfunda og aðgerðasinna sem lifa og starfa í Reykjavík:

Anna Wojtyńska, Chanel Björk Sturludóttir, Daría Sól Andrews, Ewa Marcinek, Helen Cova, Melanie Ubaldo, Nermine El Ansari og Wiola Ujazdowska. 


Dagskrá

  • Upplestur með Ufuoma Overo-Tarimo
  • Tónlist Sandra og Mamandy Sano; og Elham Fakouri
  • Spjall við listafólk, rithöfunda og aðgerðasinna sem mótuðu Inclusive Public Spaces

 

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin en vegna sóttvarna er fjöldi gesta takmarkaður og skráning nauðsynleg.
Með því að skrá þig tryggir þú þér eintak af útgáfu Inclusive Public Spaces.
Skráning hér fyrir neðan.

Viðburðurinn á Facebook.

 

Um verkefnið Inclusive Public Spaces

Fyrir hálfu ári síðan hóf Borgarbókasafnið tilraun til að kanna hvað felst í að opna almenningsrými fyrir frásögnum, sem allar tengjast því að upplifa sig sem hluti af samfélagi og hvernig áhrif litarháttur og uppruni hafa á það. Tilraunin hófst með skapandi samtali og þróað var hlaðvarp þar sem samstarfshópurinn ræðir um sínar persónulegu upplifanir af mismunun. Á einlægan og nærgætinn hátt, tala þau um mikilvægi þess að við festumst ekki í orðræðu sem einfaldar sýn okkar á samfélagið. Við þurfum að spyrja okkur gagnrýnna spurninga, ef öllum á að finnast þeir tilheyra samfélaginu. Röð listviðburða var sett upp í Grófinni sumarið 2020 og nú gefum við út safn af frásögnum sem varpa ljósi á ferlið.

Verkefnið fór fram á ensku og má nálgast hér: borgarbokasafnid.is/ips

 

Frekari upplýsingar

Um listræna ferlið:
Ewa Marcinek, ewamarcinek@gmail.com, 615 1222

Um verkefnið Inclusive Public Spaces:
Dögg Sigmarsdóttir, dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is, 854 2309
Hubert Gromny, Hubert.Gromny@reykjavik.is, 761 9761

 

Skráning á viðburðinn