Information about the event
Kyrrðarkvöld | Flot, hóphljóðbað og slökun
Þráir þú frið og ró? Komdu þá til okkar á Kyrrðarkvöld.
Ljósin verða dempuð á safninu og róleg tónlist fær að óma.
Í samstarfi við Dalslaug verður boðið upp á 30 mínútna flot í innilauginni, djúp slökun og friðsæld í líkama, huga og sál. Í floti upplifa þátttakendur heilandi stund saman í tímaleysi umlukin vatni. Athugið að flotið er ekki leitt af flotþerapista en hugleiðsla með tónlist er spiluð í gegnum hátalara í vatninu. Þátttakendur þurfa að greiða fyrir sundferðina en frítt er í flotið. (Skráning nauðsynleg, sjá hér).
Á meðan á flotinu stendur verður einnig hægt að fara í leidda slökun í salnum fyrir þau sem það kjósa.
Eftir flotið og slökunina verður boðið upp á hóphljóðbað í salnum með náttúruþerapistanum Jacek Szeloch. Í hóphljóðbaðinu notast Jacek við nepalska hljóðheilunartækni sem gengur út á að spila á söngskálar sem gefa frá sér titring. Hljóðheilunin kemur líkamanum í djúpt og heilandi slökunarástand.
Dagskrá:
kl. 19:00 30 mín flot í Dalslaug, 20 pláss í boði. (Skráning nauðsynleg, sjá hér).
kl. 19:40 30 mín flot í Dalslaug, 20 pláss í boði. (Skráning nauðsynleg, sjá hér).
kl. 20:10 30 mín flot í Dalslaug, 20 pláss í boði. (Skráning nauðsynleg, sjá hér).
kl. 19:00 30 mín slökun í sal. (Þarf ekki að skrá sig).
kl. 20:30 Hóphljóðbað í sal. (Þarf ekki að skrá sig).
Nánari upplýsingar:
ulfarsa@borgarbokasafn.is