Mynd eftir Lindu Ólafsdóttur

Information about the event

Time
All day
Price
Free
Target
Everyone
Language
-
Literature
Children
Exhibitions

Sýning | ÉG ÞORI! ÉG GET! ÉG VIL!

Saturday October 4th 2025 - Saturday November 15th 2025

Sýningin ÉG ÞORI! ÉG GET! ÉG VIL! er sett upp í tilefni af að 50 ár eru liðin frá fyrsta Kvennafrídeginum.  Á sýningunni eru frummyndir og skissur úr samnefndri bók Lindu Ólafsdóttur sem hafa verið sýndar í New York og á bókahátíðinni í Bologna, en bókin hefur hlotið fjölda viðurkenninga er tilnefnd til þýsku barnabókaverðlaunanna. 

Á sýningartímanum verður boðið upp á smiðjur fyrir börn. 

Smiðja og sögustund | 5. október 13:30 - 15:00

Smiðja og sögustund | 23. október 16:00 - 17:30 

Linda Ólafsdóttir er rit- og myndhöfundur, en hún hefur myndlýst fjölda bóka og má þar meðal annars nefna hina sígildu Íslandsbók barnanna, Reykjavík barnanna, Blíðfinn, Draumaþjófinn og bókina um Einar, Önnu og safnið sem var bannað börnum. Linda heldur reglulega námskeið, smiðjur og vinnustofur og gefur út bækur sínar bæði innanlands og utan. Fyrir verk sín hefur Linda hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna.

  

Læsi á stöðu og baráttu kvenna er samstarfsverkefni almenningsbókasafna á Íslandi í tilefni af Kvennaári 2025.  
Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði. 
 

Viðburður á Facebook.

Nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, sérfræðingur
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6145