
Information about the event
Nýr leshringur | Bókameistarar
Viltu lesa skemmtilegar og djúpar heimsbókmenntir sem mótað hafa heilu samfélögin – og hljóma gáfulega í leiðinni? Þá er þetta bókaklúbburinn fyrir þig!
Bókameistarar ætla að hittast í Borgarbókasafninu Grófinni alla miðvikudaga milli 17:00 og 18:00 frá 26. mars – 28. maí. Hópurinn hentar bæði lengra komnum og þeim sem hefur lengi langað að byrja að lesa en vita ekki hvar þeir eiga að byrja.
Við ætlum að lesa og spá í klassískum bókum eftir erlenda og íslenska höfunda. Ungt fólk er sérstaklega velkomið og eina skilyrðið fyrir val á bók er að hún má ekki vera leiðinleg.
Ekki þarf að skrá sig til þátttöku, bara mæta!
Leshringurinn á Facebook
Sjá yfirlit yfir alla leshringi og spjallhópa Borgarbókasafnsins
Nánari upplýsingar veitir:
Ísak Gabríel Regal, bókavörður
isak.gabriel.regal@reykjavik.is | 411 6100