Skólaheimsóknir | Fyrir kennara
Langar þig að færa kennsluna út fyrir skólastofuna?
Skapandi tækni á bókasafninu
Kennurum í tónlist og skapandi tækni er velkomið að nýta Tónlistar- og myndvinnsluverið á fimmtu hæð í Grófinni undir kennslu fyrir nemendur sína. Tilvalið fyrir þau sem langar að skoða nýja kennslumöguleika og breyta um umhverfi. Nánar um Tónlistar- og myndvinnsluverið hér.
Kynningar fyrir kennara
Fyrir þau sem vilja vita meira, bjóðum við upp á stuttar kynningar á Tónlistar- og myndvinnsluverinu, þar sem við förum yfir þau forrit, tæki og tól sem í boði eru í rýminu.
Notkun á rýminu er án endurgjalds og er í boði fyrir kennara og nemendur af öllum skólastigum.
Sendu okkur fyrirspurn hér fyrir neðan eða á borgarbokasafn@borgarbokasafn.is.