Series
Stiklur #5
Í fyrri þætti liggur leiðin frá Egilsstöðum til Mjóafjarðar. Þar gengur yfir hitabylgja eftir kalt sumar. Rakur og svalur útsynningur á Suðvesturlandi verður að þurrum og hlýjum hnúkaþey þegar hann steypist niður yfir Austfirði. Í síðari þætti er haldið áfram ferðinni í Mjóafirði í fylgd með Vilhjálmi Hjálmarssyni í einmuna blíðviðri. Farið er um sæbrattar skriður allt út á Dalatanga þar sem suðrænn aldingróður skrýðir gróðurhús.