Lífsorka fjallar um lífsstíl, heilsu, samskipti fólks og lífsgleði. Hún bendir á leiðir til að rækta hug og hönd og hvernig hægt er á öllum æviskeiðum að horfa til framtíðar. Hún fjallar um réttindi fólks, hlutverk lífeyrissjóða, bætur almannatrygginga, félagasamtök og félagsþjónustu, ævilengd og ónæmiskerfi, áföll og sorg, gildi hreyfingar og næringar og nauðsyn þess að eiga sér heillandi áhugamál. Lífsorka er bók fyrir þá sem hafa áhuga á sjálfum sér og framtíðinni, rit fyrir einstaklinga, stofnanir og fyrirtæki, bók fyrir alla sem eldast. (Heimild: Bókatíðindi)