Hér er farið einu skrefi lengra með blóðflokkamataræðið. Lagðar eru fram nýjar, stórmerkilegar rannsóknaniðurstöður sem fengist hafa frá því Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokk kom út, auk þess sem fjallað er um reynslusannanir frá fjölda fólks. Nauðsynleg bók fyrir alla sem vilja taka ábyrgð á eigin heilbrigði. (Heimild: Bókatíðindi)