• book

Sprungulektarkort af Skaftársvæðinu (Icelandic)

Add to list

Your lists

Close
Reserve 
Í skýrslunni er lýst smíði sprungulektarkorts / misleitnikorts af Skaftársvæðinu og þeim forsendum sem að baki hennar liggja. Verkið myndar annan hluta vatnajarðfræðigrunns þess sem notaður er við gerð vatnafarslíkans af svæðinu, en það verk er í höndum Verkfræðistofunnar Vatnaskila. Hinn hluti vatnajarðfræðigrunnsins var gerð berglektarkorts af sama svæði. Þeirri gerð er lýst í skýrslu höfundar nr. OS-2002/035. Samanlögð lektargildi sprungu- og berglektarinnar ákvarða heildar jarðlekt á hverjum stað. Svæðið sem sprungulektarkortið nær yfir er þó nokkuð stærra en vatnasvið Skaftár sjálfrar og nær m.a. yfir vatnasvið Tungufljóts, Hólmsár, Síðuvatna, Hverfisfljóts og Djúpár að einhverju eða öllu leyti. Mætti því allt eins kalla það Stór-Skaftársvæðið.
Rate this